Kisi hefur haft það á orði að henni finnist það frekar ósanngjarnt hvað Dimma fær miklu meira pláss hér á blogginu og ég varð að bæta úr því enda get ég ekki gert upp á milli barnanna minna. Hún var hins vegar ekki til í að horfa beint inn í myndavélina, sagði að henni fyndist það asnalegt, já hún var ekki í neitt sérstaklega góðu skapi, enda gengið illa á músaveiðum undanfarið.
Advertisements
hahaha 😀 Tinna er líka aldrei heima, alltaf eitthvað úti að slæpast með vinum sínum 🙂
voðalega ertu sæt með gleraugu :o)